Veðskuld slhf.: Innborgun á höfuðstól


Með vísan í skilmála og verðbréfalýsingu VEDS2 14 01 hefur útgefandi ákveðið að nýta sér heimild til að greiða inn á höfuðstól skuldabréfsins á næsta vaxtagjalddaga sem er þann 15. mars næstkomandi. Sjóðurinn mun því þriðjudaginn 15. mars 2022 greiða alls 485.000.000,- króna inn á höfuðstól bréfsins. Greiðslan er tilkomin vegna afborgana af og uppgreiðslu á skuldabréfum í eigu sjóðsins síðustu vikur og mánuði.


Nánari upplýsingar veitir Kvika eignastýring hf. sem er rekstraraðili útgefanda í síma 522 0010.