Lánasjóður sveitarfélaga - Ársreikningur 2021


Vöxtur útlána 18% á árinu 2021

Hagnaður Lánasjóðs sveitarfélaga nam 536 milljónum króna á árinu 2021 samanborið við 783 milljónir króna á árinu 2020.

Heildareignir sjóðsins í lok ársins voru 168 milljarðar króna en voru 144 milljarðar í árslok 2020 sem er aukning um 18%. Heildarútlán sjóðsins námu 160 milljörðum króna í lok ársins samanborið við 136 milljarða í árslok 2020.

Markaðsverðmæti verðbréfaútgáfu nam 29,2 milljörðum króna samanborið við 31,8 milljarða króna á árinu 2020.

Eigið fé nam 19,6 milljörðum króna en var 19,1 milljarðar í árslok 2020. Vegið eiginfjárhlutfall samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki er 630% sem nú er reiknað með fullri mildun. Í árslok 2020 var hlutfallið 454%. Lánasjóðurinn ákvað að nýta mildunarákvæði við eiginfjárútreikninga vegna útlána til sveitarfélaga í íslenskum krónum og eru með veð í tekjum sveitarfélaga.

Stjórn sjóðsins leggur til að á árinu 2022 verði hluthöfum ekki greiddur út arður vegna afkomu ársins 2021 til að styrkja stöðu sjóðsins og tryggja vöxt eigin fjár.

Helstu niðurstöður í milljónum króna:

Rekstur ársins20212020
   
Hreinar vaxtatekjur.....................................686803
Aðrar rekstrartekjur (gjöld)..........................102200
Almennur rekstrarkostnaður........................252220
Afkoma fyrir óreglulega liði......................536 783
Óreglulegir liðir..........................................00
Hagnaður ársins......................................536 783
   
Efnahagur 31. desember  
Handbært fé..............................................7884.349
Ríkisbréf og ríkisvíxlar................................7.2103.031
Markaðsverðbréf........................................167448
Útlán og kröfur...........................................159.876135.722
Aðrar eignir...............................................4644
Eignir samtals..........................................168.087 143.593
   
Verðbréfaútgáfa........................................146.577122.529
Aðrar lántökur...........................................1.8101.905
Aðrar skuldir og skuldbindingar...................10297
Skuldir samtals........................................148.490 124.532
   
Eigið fé....................................................19.598 19.062
CAD- hlutfall m/hefðbundinni mildun............56%61%
CAD- hlutfall m/fullri mildun.........................630%454%

 

Framtíðarhorfur

Lánasjóður sveitarfélaga væntir þess að eftirspurn eftir útlánum verði minni á árinu 2022 en síðustu ár þar sem nú sér fyrir enda á COVID-19 faraldrinum. Lánskjör eru með hagstæðasta móti en blikur eru á lofti vegna ófriðar og verulega aukinnar verðbólgu bæði innanlands og utan. Sjóðurinn er vel varinn gegn áhrifum af slíku.  Lánasjóðurinn mun starfa í grundvallaratriðum svipað og undanfarin ár þar sem unnið hefur verið að eflingu á starfsemi hans og aukinni þjónustu við sveitarfélögin með því að nýta gott lánstraust sjóðsins til að uppfylla meginhlutverk hans.

Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila verður haldinn mánudaginn 14. mars kl. 9.00. Óttar Guðjónsson framkvæmdastjóri mun kynna afkomu og efnahag sjóðsins ásamt því að svara spurningum. Fundurinn er fjarfundur og eru markaðsaðilar beðnir um að staðfesta þátttöku á fundinum með því að senda tölvupóst á ottar@lanasjodur.is.

 

Nánari upplýsingar veitir: Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, s. 515 4949.

Viðhengi



Attachments

Lánasjóður sveitarfélaga ohf _ Ársreikningur 2021 LS-2021-12-31-IS LS - Afkomutilkynning vegna ársuppgjörs 2021