Islandsbanki hf.: Birting afkomu 1F2022


Íslandsbanki mun birta afkomu fyrir fyrsta ársfjórðung 2022 eftir lokun markaða þann 5. maí 2022.

Rafrænn afkomufundur föstudaginn 6. maí kl.8.30

Íslandsbanki mun halda rafrænan afkomufund föstudaginn 6. maí kl. 8.30 fyrir fjárfesta og markaðsaðila. Birna Einarsdóttir, bankastjóri og Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri munu kynna afkomu bankans og helstu atriði í rekstri hans á fyrsta ársfjórðungi. Fundurinn fer fram á ensku.

Skráning á fundinn fer fram á þessari síðu. Upptaka af fundinum verður aðgengileg á síðu fjárfestatengsla að honum loknum.

Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn og lagt fram spurningar í gegnum eftirfarandi símanúmer:

Ísland:+354 800 74 37
Danmörk:+45 354 45 577
Svíþjóð:+46 8 566 42 651
Noregur:+47 235 00 243
Bretland:+44 33 330 00 804
Bandaríkin:+1 631 913 1422

Aðgangskóði:  11682344#

Fjárfestatengsl
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Íslandsbanka í gegnum netfangið ir@islandsbanki.is

Póstlisti Íslandsbanka
Ef þú vilt gerast áskrifandi að kauphallarfréttum Íslandsbanka þá vinsamlegast skráðu þig hér: https://www.islandsbanki.is/is/grein/postlisti_ir

Um Íslandsbanka
Íslandsbanki er alhliða banki sem leggur áherslu á að koma til móts við þarfir viðskiptavina sinna og á sér langa sögu sem nær aftur til ársins 1875. Bankinn leggur áherslu á traustan rekstur og að hafa jákvæð áhrif í samfélaginu en hlutverk bankans er að vera hreyfiafl til góðra verka svo viðskiptavinir okkar nái árangri. Með framtíðarsýnina að vera #1 í þjónustu að leiðarljósi vinna þrjár viðskiptaeiningar þétt saman til þess að viðhalda góðum viðskiptasamböndum. Markaðshlutdeild bankans er sterk og rekur bankinn skilvirkasta útibúanetið á landinu og styður um leið við viðskiptavini sína á stafrænni vegferð þeirra. Umhverfið sem bankinn starfar í er eftirsóknarvert og er Íslandsbanki vel í stakk búinn að takast á við tækifærin framundan með öflugar tæknilegar stoðir og sterkan efnahagsreikning. Íslandsbanki er með lánshæfismatið BBB/A-2 frá S&P Global Ratings. Hlutabréf bankans eru skráð á Aðalmarkað Nasdaq Iceland.