TÆPLEGA 7.000 NÝIR EIGENDUR EFTIR HLUTAFJÁRÚTBOÐ ÖLGERÐARINNAR


Tæplega 7.000 nýir hluthafar bætast í hóp eigenda Ölgerðarinnar Egill Skallagrímsson eftir vel heppnað hlutafjárútboð fyrirtækisins sem lauk föstudaginn 27. maí 2022. Rúmlega fjórföld eftirspurn var eftir hlutafé í fyrirtækinu þar sem almenningur keyptu hlutafé á genginu 8,9 kr. á hlut og stærri fjárfestar buðu 10,03 kr. á hvern hlut.

Alls bárust áskriftir fyrir rúmlega 32 ma. kr. en boðnir voru 827,3 milljónir af áður útgefnum hlutum. Í sölubók A var rúmlega þreföld eftirspurn og fimmföld í tilboðsbók B. Seljendur samþykktu áskriftir fyrir 29,5% af hlutafé félagsins og var söluandvirði 7,9 ma. kr.

Við erum í skýjunum með þessar frábæru móttökur sem færa stóran hluta fyrirtækisins í eigu þjóðarinnar. Við vonuðumst vissulega eftir góðum viðbrögðum, en þau fóru fram úr okkar björtustu vonum og sýna að viðskiptavinir og fjárfestar hafa trú á fyrirtækinu, vörum okkar, þjónustu og framtíðarsýn,“ segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar.

Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu mikið af ungu fólki keypti hlut í fyrirtækinu, sem sýnir okkur svart á hvítu hversu stóran sess Ölgerðin skipar hjá þjóðinni,“ segir Andri Þór.

Fyrirtækjaráðgjöf Kviku banka hafði umsjón með útboðinu og geta þátttakendur nálgast upplýsingar um úthlutun á www.kvika.is/olgerdin og nota sömu aðgangsauðkenni og þeir notuðu til að skrá áskrift sína í útboðinu. Gjald- og eindagi áskrifta er 3. júní 2022 og ráðgert er að viðskipti með hlutabréf Ölgerðarinnar hefjist fimmtudaginn 9. júní 2022.

Nánari upplýsingar:

Andri Þór Guðmundsson, forstjóri, s: 412 8000 / andri.thor.gudmundsson@olgerdin.is