Islandsbanki hf.: Útboð á sértryggðum skuldabréfum 8. júní


Íslandsbanki hf. verður með lokað útboð á sértryggðum skuldabréfum miðvikudaginn 8. júní 2022.

Boðnir verða út flokkarnir ISB CBF 27, ISB CB 27 og ISB CBI 28.

Í tengslum við útboðið fer fram skiptiútboð þar sem eigendur flokksins ISB CBI 22 eiga þess kost að selja bréf í flokknum gegn kaupum á skuldabréfum í ofangreindu útboði. Verð á ISB CBI 22 er fyrirfram ákveðið og er hreint verð 100,878.

Bankinn áskilur sér rétt til að samþykkja eða hafna tilboðum að hluta til eða öllu leyti.

Áætlaður uppgjörsdagur viðskipta er 15. júní 2022.

Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið vbm@isb.is fyrir kl. 16:00 þann 8. júní 2022.

Nánari upplýsingar veita: Fjárfestatengsl ir@islandsbanki.is.