Lánasjóður sveitarfélaga býður aðalmiðlurum bréf vegna viðskiptavaktar


Lánasjóður sveitarfélaga hefur í dag boðið aðalmiðlurum til sölu skuldabréf sem samsvarar útistandandi verðbréfalánum til hvers aðalmiðlara.

Er þetta gert til að tryggja virkni viðskiptavaktar og þannig stuðla að virkri verðmyndun með skuldabréf Lánasjóðsins.

Sölukrafa er miðkrafa við lok markaðar í dag, föstudaginn 3. júní. Bréfin verða seld af áður útgefnum bréfum í eigu Lánasjóðsins.


Nánari upplýsingar veitir:
Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri Lánasjóðs sveitarfélaga, í síma 895 4567 eða ottar@lanasjodur.is