Sjóvá: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Sjóvá-Almennar tryggingar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í viku 23 keypti Sjóvá 2.676.000 eigin hluti að kaupverði 87.416.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
7.6.202211:23:07892.00032,6029.079.200
8.6.202209:59:53892.00032,4028.900.800
10.6.202215:17:45892.00033,0029.436.000
Samtals 2.676.000 87.416.000
     

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 13. maí 2022.

Sjóvá átti 20.271.105 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 22.947.105 eigin hluti eða sem nemur 1,89% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sjóvá hefur keypt samtals 8.170.669 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,67% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 264.758.209 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 17.434.884 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 2,65% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 30. júní 2023, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995,  5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Nánari upplýsingar veitir:

Andri Már Rúnarsson í síma 772-5590 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is