Sjóvá: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Sjóvá-Almennar tryggingar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í viku 25 keypti Sjóvá 968.488 eigin hluti að kaupverði 30.216.826 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
20.6.202211:43:24892.00031,2027.830.400
21.6.202212:24:2476.48831,202.386.426
Samtals 968.488 30.216.826
     

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 13. maí 2022.

Sjóvá átti 24.731.105 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 25.699.593 eigin hluti eða sem nemur 2,11% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sjóvá hefur keypt samtals 10.923.157 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,90% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 352.776.635 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 17.434.884 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 2,65% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 30. júní 2023, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Nánari upplýsingar veitir:

Andri Már Rúnarsson í síma 772-5590 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is