Sjóvá: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun - Kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun lokið.


Sjóvá-Almennar tryggingar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun - Kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun lokið.

Í viku 27 keypti Sjóvá 1.764.287 eigin hluti að kaupverði 58.915.358 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
5.7.202213:33:58892.00032,8029.257.600
7.7.202210:40:16872.28734,0029.657.758
Samtals 1.764.287 58.915.358
     

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 13. maí 2022.

Sjóvá átti 28.375.593 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 30.139.880 eigin hluti eða sem nemur 2,48% af útgefnum hlutum í félaginu.

Kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun er nú lokið. Sjóvá hefur keypt samtals 15.363.444 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,26% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 499.999.993 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni máttu nema að hámarki 17.434.884 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 2,65% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð mátti þó ekki vera hærra en 500.000.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar var í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Nánari upplýsingar veitir:

Andri Már Rúnarsson í síma 772-5590 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is