Nova og Sýn undirrita samstarfssamning um samnýtingu á 5G sendum


Nova hf. og Sýn hf. hafa í dag, 13.07.2022, undirritað samning um samstarf félaganna við uppbyggingu og samnýtingu sendastaða vegna 5G uppbyggingar. Samningurinn gildir til ársloka 2028 og kveður á um uppbyggingu og samnýtingu á 200 5G sendum á samningstímanum og skilmála samstarfs aðila.

Samningurinn byggir að hluta til á og kemur til viðbótar við samstarf félagana frá árinu 2016 um sameignlega uppbyggingu og rekstur 2G, 3G og 4G þjónustu.

Á grundvelli samningsins mun hvort félag byggja, taka í notkun og reka 100 sendastaði með 5G þjónustu, að meðtöldum þeim sendum sem þegar hafa verið byggðir. Samningurinn nær því til samtals 200 5G senda um land allt.

Samningurinn kveður á um að hvorum aðila sé gert kleift að nýta senda hins aðilans fyrir 5G þjónustu. Þá er ekki gert ráð fyrir fjárhagslegu uppgjöri milli félaganna þar sem jöfn skipting kostnaðar og samnýtingar er fyrirhuguð. Þá er hvorum aðila um sig heimilt að selja í heildsölu aðgang til þriðja aðila að sendum.

Ákveðið er að uppbygging allra senda verði lokið í árslok 2024 og er hvor aðili skuldbundinn til að leyfa gagnaðila að samnýta þá senda sem falla undir samninginn hið minnsta út árið 2028.

Markmið aðila með gerð samningsins er að auka hagkvæmni og skilvirkni við uppbyggingu og rekstur 5G þjónustu og innviða, draga úr umhverfisáhrifum slíkrar uppbyggingar og tryggja enn betur fjarskiptaöryggi og þjónustu við viðskiptavini.


Nánari upplýsingar veitir: 

Margrét Tryggvadóttir, forstjóri Nova hf., margret@nova.is