Sjóvá: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 29 keypti Sjóvá 1.697.831 eigin hluti að kaupverði 60.439.082 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
18.7.202214:16:1530.00036,001.080.000
18.7.202215:04:01208.99036,207.565.438
19.7.202215:19:116.84136,20247.644
20.7.202209:31:47726.00035,8025.990.800
22.7.202215:18:57726.00035,2025.555.200
Samtals 1.697.831 60.439.082
     

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 18. júlí 2022.

Sjóvá átti 30.139.880 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 31.837.711 eigin hluti eða sem nemur 2,62% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sjóvá hefur keypt samtals 1.697.831 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,14% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 60.439.082 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 9.364.569 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 3,25% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 250.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 30. júní 2023, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, II. kafla viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Nánari upplýsingar veitir:

Andri Már Rúnarsson í síma 772-5590 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is