Veðskuld slhf., félag í rekstri Kviku eignastýringar hf., birtir árshlutareikning sinn fyrir 30. júní 2022.
- Afkoma sjóðsins á fyrstu sex mánuðum ársins nam 0 kr. samkvæmt rekstrarreikningi þar sem skuldabréfaeigendur fá afkomu félagsins reiknaða í formi vaxtaauka á útgefin skuldabréf.
- Heildareignir námu 5.945 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
- Eigið fé sjóðsins nam 5 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
- Árshlutareikningurinn var kannaður af Deloitte ehf. Við könnun þeirra kom ekkert fram sem bendir til annars en að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins á tímabilinu, fjárhagsstöðu þess 30. júní 2022 og breytingu á handbæru fé á tímabilinu, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu, viðbótarkröfur í lögum um ársreikninga og lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.
Nánari upplýsingar um árshlutareikning Veðskuldar slhf. veitir starfsfólk Kviku eignastýringar hf. í síma 522-0010.
Viðhengi