Eik fasteignafélag hf.: Lok viðræðna um kaup á eignum Lambhaga


Eik fasteignafélag hf. og Klöpp-eignarhaldsfélag ehf. hafa slitið viðræðum um möguleg kaup Eikar fasteignafélags á öllu útgefnu hlutafé í Lambhagavegi 23 ehf. og Laufskálum fasteignafélagi ehf.

Viðræðurnar hafa farið fram á grundvelli samkomulags um helstu skilmála sem upplýst var um 16. júní 2022. Samkvæmt því hafði félagið einkarétt á að vinna með seljanda að kaupum og sölu félaganna.

Upplýst var um framlengingu einkaréttarins 15. júlí 2022 og í byrjun september um að unnið væri að athugasemdum sem komu fram í áreiðanleikakönnun, þótt einkarétturinn hefði runnið út.

Aðilar meta það svo í ljósi athugasemda í áreiðanleikakönnunum að þeir muni ekki, að óbreyttu, ná endanlegu samkomulagi á grundvelli helstu skilmála sem þeir höfðu orðið ásáttir um.

Nánari upplýsingar veitir:

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, gardar@eik.is, 590-2200 / 861-3027.