Alma íbúðafélag hf.: Útgáfa á víxlum


Alma íbúðafélag hf.: Útgáfa á víxlum

Alma íbúðafélag hf. hefur lokið sölu á víxlum í tveimur flokkum. Víxlarnir eru óveðtryggðir til 4 og 6 mánaða. Seldir voru víxlar að nafnvirði 460 m.kr. á 7,5% vöxtum til 4 mánaða og að nafnvirði 260 m.kr. á 7,6% vöxtum til 6 mánaða.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er föstudaginn 28. október 2022.

Arctica Finance hf. hafði umsjón með sölu víxlanna.

Nánari upplýsingar veitir:

Sigurður Rúnar Pálsson, fjármálastjóri, í síma 848 5290 eða sigurdur@al.is