Reginn hf.: Birting uppgjörs þriðja ársfjórðungs 2022


Reginn hf. mun birta samþykkt uppgjör fyrir þriðja ársfjórðung ársins 2022, eftir lokun markaða fimmtudaginn 3. nóvember 2022.

Af því tilefni býður Reginn hf. til rafræns kynningarfundar föstudaginn 4. nóvember nk. kl. 8.30.

Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins hf., mun kynna uppgjörið. Hægt er að senda fyrirspurnir á fjarfestatengsl@reginn.is fyrir fundinn og á meðan kynningu stendur sem svarað verður að kynningu lokinni.


Fundinum verður varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð:

https://vimeo.com/event/2522086/embed/15de957e70


Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri Regins hf. – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262