Veðskuld slhf. : Innborgun á höfuðstól


Með vísan í skilmála og verðbréfalýsingu VEDS2 17 01 hefur útgefandi ákveðið að nýta sér heimild til að greiða inn á höfuðstól skuldabréfsins á næsta vaxtagjalddaga sem er þann 15. desember næstkomandi. Sjóðurinn mun því fimmtudaginn 15. desember 2022 greiða alls 1.300.000.000,- króna inn á höfuðstól bréfsins. Greiðslan er tilkomin vegna afborgana af og uppgreiðslu á skuldabréfum í eigu sjóðsins síðustu vikur og mánuði.

Nánari upplýsingar veitir Kvika eignastýring hf. sem rekstraraðili útgefanda.