Framlenging einkaviðræðna um sölu á stofnneti Sýnar hf. til Ljósleiðarans ehf.


Vísað er til fyrri kauphallartilkynningar, dags. 5. september sl., þar sem tilkynnt var um samkomulag um einkaviðræður og helstu skilmála samninga sem lúta annars vegar að sölu á stofnneti Sýnar hf. til Ljósleiðarans ehf. og hins vegar að þjónustusamningi milli aðila.

Eins og fram kom í kauphallartilkynningu Ljósleiðarans í gær hefur Ljósleiðarinn aflétt fyrirvörum sínum um áreiðanleikakönnun og fjármögnun vegna kaupanna. Viðræður standa enn yfir um einstök útfærsluatriði kaup- og þjónustusamnings. Ákveðið hefur verið að framlengja gildistíma einkaviðræðna til og með 20. desember nk., til að ljúka þeirri vinnu. Endanlegir samningar verða eftir sem áður með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlits.


Tengiliður:

Breki Logason
stjórnandi samskipta
breki@ljosleidarinn.is

Framlenging einkaviðræðna um sölu á stofnneti Sýnar hf. til Ljósleiðarans ehf.

Vísað er til fyrri kauphallartilkynningar, dags. 5. september sl., þar sem tilkynnt var um samkomulag um einkaviðræður og helstu skilmála samninga sem lúta annars vegar að sölu á stofnneti Sýnar hf. til Ljósleiðarans ehf. og hins vegar að þjónustusamningi milli aðila.



Eins og fram kom í kauphallartilkynningu Ljósleiðarans í gær hefur Ljósleiðarinn aflétt fyrirvörum sínum um áreiðanleikakönnun og fjármögnun vegna kaupanna. Viðræður standa enn yfir um einstök útfærsluatriði kaup- og þjónustusamnings. Ákveðið hefur verið að framlengja gildistíma einkaviðræðna til og með 20. desember nk, til að ljúka þeirri vinnu. Endanlegir samningar verða eftir sem áður með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlits.