Ljósleiðarinn og Sýn skrifa undir samninga


Ljósleiðarinn ehf. og Sýn hf. luku í dag við gerð kaupsamnings Ljósleiðarans á stofnneti Sýnar og þjónustusamnings milli fyrirtækjanna en tilkynnt var um einkaviðræður félaganna 5. september síðastliðinn. Samningarnir ásamt viðeigandi tilkynningu verða send Samkeppniseftirlitinu til rýni en fyrirvari er í samningunum um samþykki eftirlitsins. Áður hafði Ljósleiðarinn aflétt fyrirvörum vegna fjármögnunar og áreiðanleikakönnunar.

Það voru þeir Yngvi Halldórsson, forstjóri Sýnar, og Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ljósleiðarans, sem skrifuðu undir samningana í dag. Þeir fela meðal annars í sér kaup Ljósleiðarans á stofnneti Sýnar fyrir þrjá milljarða króna og þjónustukaup Sýnar af Ljósleiðaranum til tólf ára.

Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ljósleiðarans:

Við Ljósleiðarafólk fögnum þessum samningum við Sýn einkum af þremur ástæðum. Við kaupum stofnnet af Sýn sem hjálpar okkur að auka fjarskiptaöryggi í landinu til mikilla muna með nýjum öflugri landshring. Til viðbótar styrkjum við heilbrigða samkeppni á fjarskiptamarkaði með því að bjóða fólki og fyrirtækjum upp á val um gagnaflutninga um ljósleiðara sem víðast um landið. Loks tryggjum við áframhaldandi gott samstarf við Sýn sem hefur verið einn mikilvægasti viðskiptavinur Ljósleiðarans frá upphafi.

Þjónustusamningurinn bætist nú við fyrri samninga við Nova og Farice og eykur hagkvæmni fjárfestinganna sem Ljósleiðarinn stendur í.

Gagnaflutningar og tenging við Netið eru orðin svo snar þáttur í öllu okkar lífi að hvort sem það er í vinnu eða leik þá kostar netleysi veruleg óþægindi ef ekki stökustu vandræði eða hreinlega hættu. Ljósleiðarinn er stoltur af því að leiða saman fjölda aðila við að setja saman nýjan öflugri landshring fjarskipta sem í senn eykur öryggi og eflir samkeppni.

Tengiliður:

Erling Freyr Guðmundsson
framkvæmdastjóri Ljósleiðarans
erling.freyr.gudmundsson@ljosleidarinn.is