Í 51. viku 2022 keypti Vátryggingafélag Íslands hf. (VÍS) 5.750.000 eigin hluti fyrir kr. 98.267.500 eins og hér segir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
19.12.2022 | 12:17:19 | 1.150.000 | 17,50 | 20.125.000 | 27.600.000 |
20.12.2022 | 09:45:40 | 1.150.000 | 17,00 | 19.550.000 | 28.750.000 |
21.12.2022 | 10:08:34 | 1.150.000 | 16,95 | 19.492.500 | 29.900.000 |
22.12.2022 | 09:45:40 | 1.150.000 | 17,05 | 19.607.500 | 31.050.000 |
23.12.2022 | 11:22:53 | 1.150.000 | 16,95 | 19.492.500 | 32.200.000 |
| | 5.750.000 | | 98.267.500 | 32.200.000 |
Kaupin eru í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 16. nóvember 2022, sbr. tilkynningu á markað sama dag.
VÍS hefur keypt samtals 32.200.000 hluti í félaginu sem samsvarar 32,20% af þeim eigin hlutum sem að hámarki var heimilt að kaupa samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 576.430.000. VÍS á nú samtals 32.200.000 hluti eða 1,84% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.750.000.000.
Í endurkaupaáætluninni kemur fram að ekki verði keyptir fleiri en 100.000.000 hlutir. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
![](https://ml-eu.globenewswire.com/media/MmM2YWVhMTAtMTZiMC00YTFjLTg5YjgtYzg0MjYwMGQ5MmNkLTExMDc5NTA=/tiny/V-tryggingaf-lag-slands-hf-.png)