Í 52. viku 2022 keypti Vátryggingafélag Íslands hf. (VÍS) 2.300.000 eigin hluti fyrir kr. 39.215.000 eins og hér segir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
27.12.2022 | 15:24:12 | 1.150.000 | 17,1 | 19.665.000 | 33.350.000 |
29.12.2022 | 10:43:50 | 1.150.000 | 17,0 | 19.550.000 | 34.500.000 |
| | 2.300.000 | | 39.215.000 | 34.500.000 |
Kaupin eru í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 16. nóvember 2022, sbr. tilkynningu á markað sama dag.
VÍS hefur keypt samtals 34.500.000 hluti í félaginu sem samsvarar 34,50% af þeim eigin hlutum sem að hámarki var heimilt að kaupa samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 615.645.000. VÍS á nú samtals 34.500.000 hluti eða 1,97% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.750.000.000.
Í endurkaupaáætluninni kemur fram að ekki verði keyptir fleiri en 100.000.000 hlutir. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
![](https://ml-eu.globenewswire.com/media/NmJlNDA2NTItYzNkOS00OGJiLWI1NDQtNzE5Y2Y3NjA2M2NmLTExMDc5NTA=/tiny/V-tryggingaf-lag-slands-hf-.png)