Tilnefningarnefnd Regins hf. auglýsir eftir framboðum og tilnefningum til stjórnar Regins fyrir aðalfund félagsins sem haldinn verður fimmtudaginn 9. mars 2023.
Vakin er athygli á því að frestur til að skila inn framboðum til nefndarinnar er til föstudagsins 20. janúar 2023 og skal senda þær á tilnefningarnefnd@reginn.is. Tilnefningar nefndarinnar um stjórn félagsins verða birtar samhliða birtingu fundarboðs aðalfundar, sem samkvæmt samþykktum félagsins er boðað til með skemmst þriggja vikna fyrirvara.
Frekari upplýsingar má finna á vefsíðu félagsins www.reginn.is/fjarfestavefur.
Tilnefningarnefnd Regins hf.
![](https://ml-eu.globenewswire.com/media/OTcwOGM3ZDEtNGZkYy00OTMzLWEyNzYtYjMzYWM5M2Q2ZDViLTExMDgwMzA=/tiny/Reginn-hf-.png)