Reykjavíkurborg samþykkir tilboð Íslandsbanka um lánaramma


Reykjavíkurborg hefur samþykkt að taka tilboði Íslandsbanka um lánaramma til 10 ára að fjárhæð allt að 6.000 m.kr. Fjármagnið verður nýtt til fjármögnunar á fjárfestingaráætlun borgarinnar og fellur undir lántökuáætlun ársins sem gerir ráð fyrir að lántaka á árinu 2023 nemi allt að 21.000 m.kr.

Nánari upplýsingar veitir:

Helga Benediktsdóttir
Skrifstofustjóri fjárstýringar- og innheimtuskrifstofu
Netfang: helga.benediktsdottir@reykjavik.is        
Sími: 898-8272