Eik fasteignafélag hf.: Auglýst eftir tilnefningum og framboðum til stjórnar


Tilnefningarnefnd Eikar fasteignafélags hf. auglýsir eftir tillögum hluthafa að frambjóðendum til stjórnarkjörs og framboðum til stjórnar vegna aðalfundar félagsins sem stendur til að halda 30. mars 2023.

Tilkynning um framboð skal vera á sérstöku eyðublaði sem unnt er að nálgast á heimasíðu félagsins https://www.eik.is/hluthafar/. Tillögur hluthafa og framboð skulu send á netfangið tilnefningarnefnd@eik.is eigi síðar en 17. febrúar 2023.

Rökstudd tillaga nefndarinnar skal kynnt með fundarboði aðalfundar og vera aðgengileg hluthöfum á heimasíðu félagsins a.m.k. þremur vikum fyrir aðalfund. Starfsemi tilnefningarnefndar takmarkar ekki heimildir til þess að skila inn framboðum til stjórnar minnst sjö sólarhringum fyrir aðalfund í samræmi við 3. mgr. 20. gr. samþykkta félagsins.

Viðhengi



Attachments

Framboð til stjórnarsetu (eyðublað)