Í 4. viku 2023 keypti Vátryggingafélag Íslands hf. (VÍS) 3.450.000 eigin hluti fyrir kr. 62.675.000 eins og hér segir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
24.1.2023 | 14:51:57 | 1.150.000 | 17,7 | 20.355.000 | 49.350.000 |
26.1.2023 | 11:09:59 | 1.150.000 | 18 | 20.700.000 | 50.500.000 |
27.1.2023 | 11:08:00 | 1.150.000 | 18,8 | 21.620.000 | 51.650.000 |
3.450.000 | 62.675.000 | 51.650.000 |
Kaupin eru í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 16. nóvember 2022, sbr. tilkynningu á markað sama dag.
VÍS hefur keypt samtals 51.650.000 hluti í félaginu sem samsvarar 51,65% af þeim eigin hlutum sem að hámarki var heimilt að kaupa samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 915.975.000. VÍS á nú samtals 51.650.000 hluti eða 2,95% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.750.000.000.
Í endurkaupaáætluninni kemur fram að ekki verði keyptir fleiri en 100.000.000 hlutir. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
![](https://ml-eu.globenewswire.com/media/ODgxMTg2ZDItOTRhZS00YTI3LWIxZWYtYzE5NzYyODYxNmJiLTExMDc5NTA=/tiny/V-tryggingaf-lag-slands-hf-.png)