Vilhjálmur Vilhjálmsson, stjórnarformaður Hampiðjunnar, hefur selt hlutabréf í Hampiðjunni til stærsta hluthafa Hampiðjunnar, Hvals hf. Forstjóri Hvals, Kristján Loftsson, er einnig stjórnarmaður í Hampiðjunni.
Sala á hlutabréfunum er að hluta til að greiða erfðafjárskatt frá síðasta sumri.
Eftir viðskiptin er Vilhjálmur áfram einn af stærstu hluthöfum félagsins með 8.387.374 hluti. Hvalur á eftir viðskiptin 228.384.667 hluti í Hampiðjunni.
Nánari upplýsingar um viðskiptin má sjá í meðfylgjandi tilkynningum.
Viðhengi
![](https://ml-eu.globenewswire.com/media/NzZkYjZlODMtYTgzNy00ZjExLTg1ZGYtYWJkMDM5OTBiOTU4LTExMDc5MzY=/tiny/Hampi-jan-hf-.png)