VÍS: Birting ársuppgjörs 2022 og kynningarfundur


VÍS mun birta ársuppgjör sitt eftir lokun markaða þann 23. febrúar næstkomandi. Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn daginn eftir, föstudaginn 24. febrúar, klukkan 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 3. Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri félagsins, mun kynna uppgjörið. 

Hægt verður að fylgjast með fundinum á vefslóðinni: https://vis.is/arsuppgjor-2022/ Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á sömu slóð.   

Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri VÍS, í síma 660-5260 eða með netfanginu fjarfestatengsl@vis.is