Eik fasteignafélag hf.: Birting ársuppgjörs 2022 þann 28. febrúar. Kynningarfundur 1. mars


Eik fasteignafélag hf. mun birta ársuppgjör 2022 eftir lokun markaða þriðjudaginn 28. febrúar nk.

Opinn kynningarfundur verður haldinn miðvikudaginn 1. mars nk. kl. 8:30 á 19. hæð Smáratorgs 3, Kópavogi. Boðið verður upp á léttan morgunverð frá kl. 8:00. Fundurinn verður einnig á rafrænu formi.

Garðar Hannes Friðjónsson forstjóri og Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu.

Tengill á fundinn mun verða sendur út samhliða birtingu uppgjörsins.