Alma íbúðafélag hf.: Útgáfa á víxlum
Alma íbúðafélag hf. hefur lokið sölu á óveðtryggðum 4ja mánaða víxli. Seldir voru víxlar að nafnvirði 400 m.kr. á 8,5% vöxtum.
Greiðslu- og uppgjörsdagur er þriðjudaginn 28. febrúar 2023.
Arctica Finance hf. hafði umsjón með sölu víxlanna.
Nánari upplýsingar veitir:
Sigurður Rúnar Pálsson, fjármálastjóri, í síma 848 5290 eða sigurdur@al.is
![](https://ml-eu.globenewswire.com/media/ZjlhMDE3MGYtMzliNy00YTIwLWIxYWItN2M2NzMzNDkwNTZmLTExMDU5MzM=/tiny/Alma-b-af-lag-hf-.png)