Veðskuld slhf.: Innborgun á höfuðstól


Með vísan í skilmála og verðbréfalýsingu VEDS2 17 01 hefur útgefandi ákveðið að nýta sér heimild til að greiða inn á höfuðstól skuldabréfsins á næsta vaxtagjalddaga sem er þann 15. mars næstkomandi. Sjóðurinn mun því miðvikudaginn 15. mars 2023 greiða alls 200.000.000,- króna inn á höfuðstól bréfsins. Greiðslan er tilkomin vegna vaxta og afkomuauka, afborgana af og uppgreiðslu á skuldabréfum í eigu sjóðsins síðustu vikur og mánuði. 

Nánari upplýsingar veitir Kvika eignastýring hf. sem er rekstraraðili útgefanda.