Ársreikningur Múlaþings 2022


Ársreikningur Múlaþings fyrir árið 2022 lagður fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn Múlaþings þann 15. mars 2023 samþykktur og áritaður af byggðaráði og sveitarstjóra. Samkvæmt sveitarstjórnalögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og er áætlað að seinni umræða fari fram miðvikudaginn 12. apríl 2023.

Helstu niðurstöður.

  • Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir, fjármagnsliði og tekjuskatt (EBITDA) í samstæðureikning Múlaþings var jákvæð um 1.197 millj. kr. á árinu 2022 eða um 14% í hlutfalli af rekstartekjum.

Hjá A hluta nam EBITDA 359 millj. kr. á árinu 2022 eða um 4,9% í hlutfalli af rekstartekjum.

  • Fjármagnsgjöld námu 849 millj. kr. í samstæðu A og B hluta en samanlögð fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 470 millj. kr. Fjármagnsgjöld A hluta námu 671 millj. kr. en samanlögð fjárhagsáætlun ársins gerði ráð fyrir 329 millj. kr.

  • Rekstrarafkoma Múlaþings árið 2022 var neikvæð um 76 millj. kr. samkvæmt samstæðureikningi sveitarfélagsins en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 65 millj. kr. rekstrarafgangi. Rekstarafkoma A hluta var neikvæð um 548 millj. kr. en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 202 millj. kr. rekstarhalla.  

  • Lakari rekstarniðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir skýrist að mestu af neikvæðri þróun á verðbólgu á árinu 2022.  
  • Veltufé frá rekstri nam 1.037 millj. kr. á árinu 2022 í samstæðu A- og B hluta eða 12,1% sem hlutfall af rekstartekjum. Veltufé frá rekstri í A hluta nam 307 millj. kr. eða 4,2% sem hlutfall af rekstartekjum.

  • Eigið fé var jákvætt í árslok 2022 um 2.772 millj. kr. í samstæðu A- og B hluta að teknu tilliti til hlutdeildar minnihluta. Eigið fé A hluta var jákvætt um 799 millj. kr. í árslok 2022.

  • Skuldir og skuldbindingar samstæðu A- og B hluta námu í árslok 2022 um 12.397 millj. kr. og hækka um 1.489 millj. kr. frá árinu 2021. Skuldaviðmið skv. reglugerð um fjárhagsleg viðmið fyrir samstæðureikning A og B hluta er 109% í árslok 2022.

  • Hjá Múlaþingi var það metið svo að ein samrekstrareining falli undir breytingu á reglugerð 1212/2015 sem tók gildi 2021 þar sem gert er að færa, inn í samantekin reikningsskil, hlutdeild í byggðasamlögum sem falla undir ábyrgð sveitarfélags. Hjá Múlaþingi er það Samband sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) sem fellur undir þetta ákvæði og fært þannig í ársreikningi 2022, samanburðarfjárhæðir hafa verið endurgerðar til samræmis.

Ársreikning er að finna hér á heimasíðu Múlaþings.

Nánari upplýsingar veita Björn Ingimarsson, sveitarstjóri og Guðlaugur Sæbjörnsson fjármálastjóri.

Viðhengi



Attachments

Ársreikningur Múlaþings 2022_Fyrri umræða