Eik fasteignafélag hf.: Endanleg dagskrá og tillögur vegna aðalfundar 2023. Upplýsingar vegna skráningar.


Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf. verður haldinn fimmtudaginn 30. mars 2023 í salnum Vox Club á Hilton Hotel, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík, auk þess sem hluthöfum gefst kostur á að taka þátt í fundinum rafrænt.

Ekki hafa verið gerðar breytingar á dagskrá eða tillögum sem birtar voru með tilkynningu félagsins 7. mars 2023. Fundargögn eru á heimasíðu félagsins.

Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að taka þátt í fundinum eru minntir á að skrá sig tímanlega á heimasíðunni https://www.lumiconnect.com/meeting/eik2023 og ekki seinna en kl. 16:00 miðvikudaginn 29. mars 2023.

Aðstoð við skráningu á aðalfundinn er hægt að fá með því að senda tölvupóst á stjornun@eik.is. Hluthöfum sem hafa hug á að taka til máls á fundinum er boðið að upplýsa um það með tölvupósti á sama netfang.

Viðhengi



Attachments

Tillögur stjórnar Dagskrá aðalfundar 2023