Síldarvinnslan hf.: Frestun aðalfundar. Nýr fundartími


Stjórn Síldarvinnslunnar hf hefur ákveðið að fresta aðalfundi félagsins, sem fram átti að fara fimmtudaginn 30. mars nk., vegna aðstæðna í Neskaupstað í kjölfar snjóflóðanna sem féllu í nótt og í morgun.  Auk þess er veðurútlit næstu daga með þeim hætti að rétt er að fresta fundi. 

Við sendum austfirðingum, viðbragðsaðilum og öllum sem eru að vinna að því að tryggja öryggi íbúa hlýjar kveðjur.

Ráðgert er að aðalfundur fari fram þriðjudaginn 18. apríl 2023. Boðað verður til fundarins með þeim fyrirvara sem áskilin er í lögum og samþykktum félagsins.