Eik fasteignafélag hf.: Skráning á aðalfund


Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að taka þátt í aðalfundi félagsins á morgun kl. 16:00, hvort sem er rafrænt eða í eigin persónu, eru minntir á að skrá sig á heimasíðunni https://www.lumiconnect.com/meeting/eik2023 ekki seinna en kl. 16:00 í dag.

Aðstoð við skráningu á aðalfundinn er hægt að fá með því að senda tölvupóst á stjornun@eik.is. Hluthöfum sem hafa hug á að taka til máls á fundinum er boðið að upplýsa um það með tölvupósti á sama netfang.

Fundurinn fer fram í salnum Vox Club á Hilton Hotel, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík, en atkvæðagreiðslur verða einungis rafrænar.