Íþaka fasteignir ehf.: Ársreikningur árið 2022


Stjórn Íþöku fasteigna ehf. staðfesti á fundi sínum í dag, fimmtudaginn 30. mars 2023, ársreikning félagsins fyrir árið 2022. Ársreikningur félagsins hefur nú verið birtur.

Helstu atriði ársreiknings:

  • Heildarafkoma félagsins á árinu 2022 var 1.590 m.kr. Rekstrartekjur félagsins voru 2.319 m.kr. á árinu og matsbreyting fjárfestingaeigna að fjárhæð 1.918 m.kr.
  • Heildar eignir félagsins námu 32.139 m.kr. m.v. 31. desember 2022, en þar af voru fjárfestingareignir 30.951 m.kr. og handbært fé 256 m.kr. Vaxtaberandi skuldir námu 18.790 m.kr. og eigið fé félagsins 9.804 m.kr.
  • Eiginfjárhlutfall félagsins í lok ársins var 30,5%.

Ársreikningur félagsins er meðfylgjandi og er einnig að finna á heimasíðu félagsins, www.ithaka.is/fjarmala-og-markadsupplysingar.

Félagið er með skráð skuldabréf í Kauphöll Íslands, í flokkunum ITHAKA 291128 og ITHAKA 070627, og fylgir þeim reglum sem gilda um félög með skráða fjármálagerninga á skipulegum markað.

í flokknum ITHAKA 291128 og á fyrri árshelmingi 2022 í flokknum ITHAKA 070627. Voru skuldabréf í báðum flokkum tekin til viðskipta hjá Nasdaq Iceland hf. þann 19. ágúst 2022.

ÍÞAKA rekur og leigir út atvinnuhúsnæði, byggir upp lóðir og þróar lausnir til að mæta húsnæðisþörf fyrirtækja.

ÍÞAKA stefnir að því að vera styrk stoð í íslensku samfélagi með heilnæmt og sveigjanlegt húsnæði sem uppfyllir þarfir atvinnulífsins á hverjum tíma.


Nánari upplýsingar veitir Gunnar Valur Gíslason, framkvæmdastjóri, í síma 822-4403 eða í tölvupósti á gunnarvalur@ithaka.is.

Viðhengi



Attachments

Íþaka fasteignir ehf. - Ársreikningur 2022