REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 14


Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 27. janúar 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 30. janúar 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 27. janúar 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 14. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 600.000 eigin hluti að kaupverði 51.450.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
3/4/2309:42150.00083,7512.562.50022.552.695
4/4/2315:09200.00087,0017.400.00022.752.695
5/4/2309:46150.00086,2512.937.50022.902.695
5/4/2314:59100.00085,508.550.00023.002.695
Samtals 600.000 51.450.00023.002.695

Reitir hafa nú keypt samtals 5.502.695 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 91,7% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 462.694.643 kr. sem samsvarar 84,1% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Reitir eiga nú samtals 23.002.695 eigin hluti, eða um 3,01% af heildarhlutafé félagsins. Af þeirri fjárhæð voru 17.500.000 hlutir keyptir undir endurkaupaáætlunum síðasta árs en þeim lauk þann 19. desember sl. Aðalfundur félagsins þann 8. mars sl. samþykkti að lækka útgefið hlutafé félagsins um þá fjárhæð og er skráning hennar nú í lögformlegu ferli. Að teknu tilliti til lækkunarinnar væru hlutir í eigu Reita nú 5.502.695 hlutir eða 0,74% af hlutafé félagsins eins og það verður skráð eftir lækkunina.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 550 milljónir króna.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.