Sjóvá: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Sjóvá-Almennar tryggingar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Í viku 14 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 210.000 eigin hluti að kaupverði 7.623.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
5.4.202309:50:00210.00036,307.623.000
Samtals 210.000 7.623.000
     

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 09.02.2023 og 20.03.2023.

Sjóvá átti 41.421.604 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 41.631.604 eigin hluti eða sem nemur 3,42% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sjóvá hefur keypt samtals 4.503.305 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,37% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 155.270.069kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 7.183.908 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 3,64% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 250.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 11. september 2023, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Nánari upplýsingar veitir:

Sigríður Vala Halldórsdóttir í síma 844-2136 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is