Ölgerðin eignast meirihluta í Iceland Spring


Ölgerðin hefur undirritað samninga sem fela í sér að Ölgerðin eignast 51% í vatnsútflutningsfyrirtækinu Iceland Spring hf. sem selur íslenskt vatn í Bandaríkjunum, Tælandi og Kína, þ.m.t. í verslunum 7-Eleven, Walgreens og Rite Aid. Ölgerðin átti fyrir 40% hlut í Iceland Spring en á grundvelli samninga við aðra hluthafa og Iceland Spring bætir Ölgerðin við sig 3% hlut með kaupum á hlutafé af öðrum hluthöfum og 8% með áskrift að nýju hlutafé sem félagið gefur út í tengslum við viðskiptin.

Greiðsla Ölgerðarinnar vegna viðskiptanna nemur samtals rúmlega 500 milljónum króna, eða sem nemur um 3,7 milljónum USD. Iceland Spring verður með viðskiptunum hluti af samstæðu Ölgerðarinnar, en félagið hefur fram til þessa verið hlutdeildarfélag.

Þetta er afar spennandi verkefni og aukið eignarhald Ölgerðarinnar mun án efa gefa Iceland Spring aukna vigt og slagkraft bæði í útflutningi og framleiðslu. Vatnið okkar fæst nú í yfir 35.000 verslunum úti í heimi og við sjáum fram á mikil vaxtartækifæri með okkar frábæra vatni,“ segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar.

Vatnsútflutningur Iceland Spring ehf. hefur tvöfaldast frá árinu 2020. Árið 2022 var það besta í rekstri félagsins þar sem velta var 2,5 milljarðar og EBITDA félagsins um 250 milljónir króna.

Vaxtaberandi skuldir Iceland Spring eru um 400 milljónir króna eftir hlutafjáraukningu auk um 350 milljóna króna kröfu- og birgðafjármögnunar í Bandaríkjunum.

Ölgerðin sér um átöppun og aðra umsýslu fyrir Iceland Spring en félagið á vatnslind skammt frá Hólmsheiði. Ölgerðin er í viðræðum við Reykjavíkurborg um framtíðar uppbyggingu á svæðinu. Á síðasta ári voru framleiddar 33 milljónir flaskna og er gert ráð fyrir söluaukningu á þessu ári.

Eftir viðskiptin eru hluthafar Iceland Spring Ölgerðin 51%, Pure Holdings 31%, Three Amigos 13%, Iceland Water með 4% og Houston Point 1%.

Nánari upplýsingar veitir: Andri Þór Guðmundsson, forstjóri í síma 412 8000