Sjóvá: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 15 keyptu  Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 473.777 eigin hluti að kaupverði 17.339.727 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
11.4.202311:59:4610.00036,20362.000
11.4.202315:19:5813.77736,20498.727
11.4.202315:24:1630.00036,201.086.000
12.4.202309:42:2616.01336,60586.076
12.4.202313:27:0713.01736,60476.422
12.4.202314:29:32180.97036,606.623.502
14.4.202313:41:24210.00036,707.707.000
Samtals 473.777 17.339.727
     

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 09.02.2023 og 20.03.2023.

Sjóvá átti 41.631.604 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 42.105.381 eigin hluti eða sem nemur 3,46% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sjóvá hefur keypt samtals 4.977.082 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,41% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 172.609.796 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 7.183.908 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 3,64% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 250.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 11. september 2023, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Nánari upplýsingar veitir:

Sigríður Vala Halldórsdóttir í síma 844-2136 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is