REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 15 og 16 - Lok endurkaupaáætlunar


Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti endurkaupaáætlun félagsins þann 27. janúar 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 30. janúar 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 27. janúar 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 15. og 16. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 497.305 eigin hluti að kaupverði 41.716.510 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
11/4/2311:11150.00085,0012.750.00023.152.695
12/4/2311:48150.00085,2512.787.50023.302.695
 17/4/2310:30 197.305
82,00
16.179.010
 23.500.000
Samtals 497.305 41.716.51023.500.000


Endurkaupaáætlun Reita fasteignafélags hf. sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 27. janúar 2023, er nú lokið. Samkvæmt áætluninni máttu endurkaup félagsins nema allt að 6.000.000 hluta og heildarkaupverð mátti ekki nema hærri fjárhæð en 550 milljónum króna.

Félagið hefur nú keypt samtals 6.000.000 eigin hluti fyrir samtals 504.411.153 kr. í samræmi við endurkaupaáætlunina, og er því framangreindu marki um hámarks fjölda hluta sem keyptir verða náð. Reitir eiga nú samtals 23.500.000 eigin hluti, eða um 3,08% af heildarhlutafé félagsins. Af þeirri fjárhæð voru 17.500.000 hlutir keyptir undir endurkaupaáætlunum síðasta árs en þeim lauk þann 19. desember sl. Aðalfundur félagsins þann 8. mars sl. samþykkti að lækka útgefið hlutafé félagsins um þá fjárhæð og er skráning hennar nú í lögformlegu ferli. Að teknu tilliti til lækkunarinnar væru hlutir í eigu Reita nú 6.000.000 hlutir eða 0,80% af hlutafé félagsins eins og það verður skráð eftir lækkunina.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.