REITIR: Skráð lækkun hlutafjár, heildarfjöldi hluta og atkvæða


Á aðalfundi Reita fasteignafélags hf. þann 8. mars sl. var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um að lækka hlutafé félagsins um 17.500.000 kr. að nafnvirði. Lækkunin tók til eigin hluta félagsins sem það eignaðist með kaupum í samræmi við endurkaupaáætlanir stjórnar sem aðalfundur félagsins 2022 veitti heimild fyrir, og því þannig eytt.

Lögmælt skilyrði lækkunarinnar hafa verið uppfyllt og hefur hlutafjárlækkunin nú verið skráð í Fyrirtækjaskrá. Skráð hlutafé Reita eftir lækkunina er að nafnvirði 745.638.233 kr. en var fyrir lækkunina 763.138.233 kr. að nafnvirði. Hver hlutur er ein króna að nafnverði. Allir hlutir eru í sama flokki og njóta sömu réttinda.

Heildarfjöldi hluta og heildarfjöldi atkvæða er þar af leiðandi 745.638.233 kr. að nafnverði.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, netfang: einar@reitir.is, sími: 669 4416.