Lækkun hlutafjár í Sjóvá-Almennum tryggingum hf.


Skráð hefur verið í Fyrirtækjaskrá hlutafjárlækkun í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. að nafnverði kr. 37.128.299, en á aðalfundi félagsins þann 10. mars sl. var samþykkt eftirfarandi tillaga stjórnar um að lækka hlutafé félagsins:

„Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf. haldinn 10. mars 2023 samþykkir að hlutafé félagsins verði, að fengnu samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands, lækkað um kr. 37.128.299 að nafnverði til jöfnunar eigin hluta á grundvelli ákvæða laga nr. 2/1995, um hlutafélög. Hlutafé félagsins lækkar þar með úr kr. 1.215.521.504 að nafnverði í kr. 1.178.393.205 að nafnverði.“

Óskað hefur verið eftir því við Nasdaq verðbréfamiðstöð um að lækka skráð hlutafé til samræmis og mun lækkunin verða framkvæmd 21. apríl 2023.

Fyrir hlutafjárlækkunina á Sjóvá 42.105.381 eigin hluti eða sem nemur 3,46% af útgefnum hlutum í félaginu. Eftir hlutafjárlækkunina á Sjóvá 4.977.082 eigin hluti eða sem nemur um 0,42% af útgefnum hlutum í félaginu eftir lækkun. Niðurfærslan hefur ekki áhrif á hlutafé í eigu annarra hluthafa en félagsins sjálfs.

Nánari upplýsingar veitir:

Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is