Eik fasteignafélag hf.: Birting uppgjörs fyrsta ársfjórðungs 2023 þann 27. apríl - Rafrænn kynningarfundur 28. apríl


Eik fasteignafélag hf. mun birta uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2023 eftir lokun markaða fimmtudaginn 27. apríl nk. Rafrænn kynningarfundur verður haldinn föstudaginn 28. apríl nk. klukkan 8:30. Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri og Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu.
Tengill á fundinn mun verða sendur út samhliða birtingu uppgjörsins.