Birting uppgjörs Reykjavíkurborgar og kynningarfundur fyrir markaðsaðila


Reykjavíkurborg mun birta uppgjör ársins 2022 fimmtudaginn 27. apríl kl. 13.

Markaðsaðilum verður boðið til opins kynningarfundur sama dag kl. 16:00, í skrifstofum Reykjavíkurborgar Borgartúni 12-14, 7. hæð, fundarherbergi Hof.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Halldóra Káradóttir sviðsstjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs munu fara yfir helstu atriði í uppgjöri ársins, stöðu og horfur, ásamt því að svara spurningum.

Nánari upplýsingar veitir,
Halldóra Káradóttir sviðsstjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs
halldora.karadottir@reykjavik.is