Sjóvá: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 17 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 262.258 eigin hluti að kaupverði 9.430.836 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
26.4.202310:34:0714.25235,80510.222
26.4.202312:33:0238.00635,801.360.615
28.4.202310:08:05210.00036,007.560.000
Samtals 262.258 9.430.836
     

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 09.02.2023 og 20.03.2023.

Sjóvá átti 5.187.082 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 5.449.340 eigin hluti eða sem nemur 0,46% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sjóvá hefur keypt samtals 5.449.340 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,46% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 189.579.633 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 7.183.908 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 0,61% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 250.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 11. september 2023, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Nánari upplýsingar veitir:

Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is