REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 17


Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 26. apríl 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 28. apríl 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 26. apríl 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 17. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 350.000 eigin hluti að kaupverði 29.450.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
28/4/2309:49150.00084,0012.600.0006.150.000
28/4/2316:14200.00084,2516.850.0006.350.000
Samtals 350.000 29.450.0006.350.000

Reitir hafa nú keypt samtals 350.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 5,8% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 29.450.000 kr. sem samsvarar 5,4% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Reitir eiga nú samtals 6.350.000 eigin hluti, eða um 0,85% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.038.233 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 550 milljónir króna.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.