Sjóvá: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 18 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 630.000 eigin hluti að kaupverði 22.092.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
2.5.202315:07:54210.00035,407.434.000
4.5.202309:30:04210.00035,107.371.000
5.5.202309:56:23100.00034,703.470.000
5.5.202310:06:10110.00034,703.817.000
Samtals 630.000 22.092.000
     

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 09.02.2023 og 20.03.2023.

Sjóvá átti 5.449.340 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 6.079.340 eigin hluti eða sem nemur 0,52% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sjóvá hefur keypt samtals 6.079.340 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,52% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 211.671.633 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 7.183.908 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 0,61% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 250.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 11. september 2023, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Nánari upplýsingar veitir:

Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is