Sjóvá: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun – Kaupum samkvæmt áætlun lokið


Í viku 20 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 54.568 eigin hluti að kaupverði 1.866.226 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
15.5.202309:46:4854.56834,201.866.226
Samtals 54.568 1.866.226
     

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 09.02.2023 og 20.03 2023.

Sjóvá átti 7.129.340 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 7.183.908 eigin hluti eða sem nemur 0,61% af útgefnum hlutum í félaginu.

Kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun er nú lokið. Sjóvá hefur keypt samtals 7.183.908 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,61% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 249.258.858kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni máttu nema að hámarki 7.183.908 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 0,61% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð mátti þó ekki vera hærra en 250.000.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar var í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Nánari upplýsingar veitir:

Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is