REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 19


Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 26. apríl 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 28. apríl 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 26. apríl 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 19. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 1.100.000 eigin hluti að kaupverði 89.300.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
8/5/2310:46100.00081,508.150.0007.596.248
8/5/2315:13200.00080,5016.100.0007.796.248
9/5/2312:40200.00080,7516.150.0007.996.248
10/5/2309:55200.00080,5016.100.0008.196.248
11/5/2312:29200.00082,0016.400.0008.396.248
12/5/2312:51200.00082,0016.400.0008.596.248
Samtals 1.100.000 89.300.0008.596.248

Reitir hafa nú keypt samtals 2.596.248 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 43,0% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 213.288.584 kr. sem samsvarar 38,8% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Reitir eiga nú samtals 8.596.248 eigin hluti, eða um 1,15% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.038.233 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 550 milljónir króna.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.