Á aðalfundi Nova Klúbbsins hf. þann 29. mars 2023 var stjórn félagsins veitt heimild til þess að kaupa allt að 10% af eigin bréfum fyrir félagsins hönd í því skyni að setja upp formlega endurkaupaáætlun eða til að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup félagsins á eigin bréfum, t.d. með útboðsfyrirkomulagi, enda sé jafnræðis hluthafa gætt við boð um þátttöku í slíkum viðskiptum.
Stjórn Nova Klúbbsins hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar til kaupa á eigin bréfum og er markmið áætlunarinnar að lækka útgefið hlutafé félagsins. Útgefið hlutafé Nova Klúbbsins er 3.817.276.464 hlutir og eru engir hlutir í eigu félagsins við upphaf endurkaupaáætlunarinnar. Endurkaupin nú munu, skv. ákvörðun stjórnar, nema allt að 550 milljónum kr. að kaupverði.
Framkvæmd áætlunarinnar hefst á morgun, miðvikudaginn 17. maí, og mun áætlunin vera í gildi þar til framangreindri fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins 2024.
Verð fyrir hvern hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq á Íslandi, hvort sem er hærra. Hámarksmagn hvers viðskiptadags er 10.583.263 hlutir, sem nemur 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins í aprílmánuði 2023.
Arctica Finance hf. mun framkvæma endurkaupaáætlunina fyrir hönd félagsins. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri, í síma 770 1090 eða með tölvupósti á thorhallurj@nova.is.
![](https://ml-eu.globenewswire.com/media/ZTQxM2M3MWUtNWU2Yy00MDE1LTk4MjctYTIzYzA3ZTRmY2NhLTEyNjAzMjY=/tiny/Nova.png)