Eik fasteignafélag hf.: Skráning skuldabréfaflokksins EIK 25 1


Eik fasteignafélag hf. hefur birt lýsingu dagsetta 22. maí 2023. Lýsingin samanstendur af tveimur aðskildum skjölum, útgefandalýsingu og verðbréfalýsingu, og er birt í tengslum við umsókn útgefanda um að skuldabréf í flokknum EIK 25 1 verði tekin til viðskipta á Nasdaq Iceland. Lýsingin hefur verið staðfest af fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.

Íslandsbanki hf. hafði umsjón með því ferli að fá lýsinguna staðfesta hjá fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands og töku skuldabréfaflokksins til viðskipta. Lýsingin er hér meðfylgjandi og má einnig finna á heimasíðu útgefanda, www.eik.is/fjarfestar. Lýsinguna má jafnframt nálgast á skrifstofu félagsins í Sóltúni 26 í Reykjavík. Áætlað er að skuldabréfaflokkurinn verði tekinn til viðskipta þann 25. maí 2023.

Nafnverð útgáfu

Gefin hafa verið út skuldabréf að nafnverði kr. 2.340.000.000 en flokkurinn getur mest orðið kr. 4.000.000.000 að stærð. Öll útgefin skuldabréf í flokknum hafa verið seld. Skuldabréfin eru gefin út rafrænt hjá Nasdaq CSD á Íslandi í  kr. 20.000.000 einingum. Auðkenni skuldabréfaflokksins í viðskiptakerfi Nasdaq Iceland hf. verður EIK 25 1. ISIN númer bréfanna er IS0000034817.

Nánari upplýsingar veitir Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, á netfanginu lydur@eik.is eða í síma 820-8980.

Viðhengi



Attachments

Verðbréfalýsing EIK 25 Útgefandalýsing Eikar